1910A-Guðbrandsstofa
Í mörg ár hefur það verið draumur að reisa aðstöðuhús við Reynivallakirkjugarð í Kjós. Draumurinn er að þar væri geymsla fyrir garðáhöld fyrir garðinn auk þess sem þar væri hægt að komast á klósett og jafnvel fá sér kaffisopa. Þar væri þá hægt að eiga afdrep fyrir starfsfólk kirkjunnar, til dæmis söngfólk sem væri að taka þátt í athöfnum á staðnum. Þá á að vera lítill setukrókur utandyra fyrir göngufólk, en hægt er að ganga uppá Reynivallaháls frá þessum stað.
Einn þeirra sem brann fyrir þennan draum var Guðbrandur Hannesson bóndi í Hækingsdal, sem er bær í Kjósinni. Hann var tengdapabbi arkitektsins en lést haustið 2018. Guðbrandur eða Brandur brann fyrir sveitina sína og samfélagið. Hann starfaði árum saman fyrir Reynivallakirkju og sá þar þörfina fyrir mannvirki sem þetta.
Reynivellir eiga langa og merka sögu og er hönnun hússins til virðingar um þá sögu. Efniskenndin er til að endurspegla umhverfið og á húsið að verða hluti af því og falla inn í landslagið.
Öll hönnun og arkitektavinna við Guðbrandsstofu er gjöf dóttur, tengdasonar og dóttursona til Reynivallakirkju í minningu Guðbrandar.
///
For many years people dreamed of building a small service building adjoining the Reynivellir cemetery in Kjós, a rural area in the southwest region of Iceland. There was supposed to be a storage for gardening tools, toilet facility and even a little breakroom to have coffee. It could double as a facility for staff members for the Reynivellir Church, such as musicians, photographers etc.
One of those who dreamt of building like this was mr. Guðbrandur Hannesson, a farmer from nearby Hækingsdalur farm. Guðbrandur, or Brandur lived for his family and community and served as the church custodian for many years. He had seen the need for building like that. Brandur sadly passed away in the autumn of 2018. He was the architect’s father in law.
Reynivellir has a rich history dating back centuries and the building is to reflect the heritage. The material is selected to blend in with the surrounding and initially it will be part of it.
It is an honour to announce that the design and all architectural work is donated to Reynivellir Church in loving memory of Guðbrandur from Hækingsdalur, from daughter, son in law and grandsons.